föstudagur, 1. ágúst 2008

Færsla ágústmánaðar #1: Tónleikar

Ég var á Radiohead tónleikum í Glasgow um daginn. Það var rosaleg upplifun. Hef aldrei verið í svona miklu mannhafi áður. Náðum samt sem áður stæði frekar framarlega og ég gat séð í andlitin á hljómsveitarmeðlimum. Svo rigndi allan tímann...
...og hvílíkir áhorfendur! Áður en Radiohead stigu á svið var gaurinn fyrir aftan mig byrjaður að kalla að fólk ætti að taka regnhlífarnar sínar niður svo að hann gæti séð eitthvað. Eftir nokkra stund var risastór hópur í kringum mig búinn að taka undir og farnir að semja texta og slagorð og svoleiðis.
"Thom York says no to umbrellas!"
"Why didn't you just by the DVD?"
...sem endaði með því að það var ekki ein regnhlíf sjánaleg!
Það var tekið undir í hverju einasta lagi og sérstaklega þeim gömlu af The Bends og OK Computer. Í Karma Police var svo mikið sungið að Thom York byrjaði að syngja bakraddir sjálfur og þeir lengdu 'I lost myself' kaflann svo að áhorfendur gætu sungið meira.
http://www.youtube.com/watch?v=P6GuK9okmjw&feature=related
Radiohead hækkuðu allavega rosalega í áliti hjá mér þarna og eru nú þriðja uppáhalds hljómsveitin mín.

Hlustaði á Damien Rice tónleikana í útvarpinu á laugardaginn. Rice er frábær live tónlistarmaður þó að sum lögin hans hafi ekki alveg virkað í acoustic útgáfu. Rosalega er samt pirrandi þegar áhorfendur fara að klappa í miðju lagi.

Systkini mín voru á Tom Waits tónleikum í París. Öfunda þau rosalega, bæði vegna þess að mig langar svo rosalega til París (faðir minn harðneitar að fara) og Waits er minn uppáhalds tónlistarmaður. En jæja...

Svo er víst búið að hætta við Nightwish tónleikana sem áttu að vera hér. Bróðir minn er frekar leiður.

Engin ummæli: