Ég er stoltur af mér. Ég samdi loksins nýtt lag, hef ekki gert það rosalega lengi. Þetta er allt að koma hjá mér.
Skólinn er samasem búinn, skólaslit eftir. Frábært. Er búinn að fá sumarvinnu, á sama leikskóla og mamma mín vinnur á. Jafn frábært? Nei. Ekki út af þessu með mömmu mína heldur þessu með leikskólann.
Ég hef komist að því eftir 4 lítil frændsystkini að ég get ekki talað við börn. Ég get ekki fengið mig til að hækka röddina og tala kjánalega á einhverju bullmáli, og ég get heldur ekki talað venjulega við þau. Hef margoft reynt einhverjar millileiðir en þær heppnast sjaldan.
Já, ég er hræddur.
sunnudagur, 25. maí 2008
Handklæði
http://en.wikipedia.org/wiki/Towel_Day
Mundi loksins eftir þessu í ár :D Er búinn að ætla að gera þetta í 2 ár.
Leitt hvernig fór með evrósýn, en svona er þetta. Það er alltaf næsta ár.

föstudagur, 23. maí 2008
Evrósýn
...versnar og versnar með hverju ári.
Fáklæddar stelpur að syngja léleg popplög og sykursætir strákar að syngja hræðilegar kraftballöður. Og ef að einhver kemur með öðruvísi, skemmtilegt atriði er púað á þá.
Ísland komst áfram, jei. Allar norðurlandaþjóðirnar komust áfram. Eitthvað nýtt.
Bosnia-Herzegovina fær mitt atkæði. Gott lag þrátt fyrir undarlegt, frekar óhugnalegt atriði.

miðvikudagur, 21. maí 2008
Nostalgía
Hef verið haldinn nostalgíu undanfarnar vikur. Bara, hitt og þetta sem ég sakna.
9. áratugurinn, tónlistin þá, Neskvikk í baukum, lögregluhundurinn Rex (já...), Pókemon, gamalt barnaefni, gamlar auglýsingar... og það allra nýjasta: Blogg.
Svo að hér er nýja bloggsíðan mín. Blog.Central var orðið allt of flókið fyrir mig, þetta er einfalt og gott.
Ó, annað sem ég sakna: Mannsins á vídjó spólunum sem sagði alltaf hvort myndin væri bönnuð eða ekki!
"Að lesa blogg er góð skemmtun. Þetta blogg er leyft öllum aldurshópum. Góða skemmtun."

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)