Ég var á Radiohead tónleikum í Glasgow um daginn. Það var rosaleg upplifun. Hef aldrei verið í svona miklu mannhafi áður. Náðum samt sem áður stæði frekar framarlega og ég gat séð í andlitin á hljómsveitarmeðlimum. Svo rigndi allan tímann...
...og hvílíkir áhorfendur! Áður en Radiohead stigu á svið var gaurinn fyrir aftan mig byrjaður að kalla að fólk ætti að taka regnhlífarnar sínar niður svo að hann gæti séð eitthvað. Eftir nokkra stund var risastór hópur í kringum mig búinn að taka undir og farnir að semja texta og slagorð og svoleiðis.
"Thom York says no to umbrellas!"
"Why didn't you just by the DVD?"
...sem endaði með því að það var ekki ein regnhlíf sjánaleg!
Það var tekið undir í hverju einasta lagi og sérstaklega þeim gömlu af The Bends og OK Computer. Í Karma Police var svo mikið sungið að Thom York byrjaði að syngja bakraddir sjálfur og þeir lengdu 'I lost myself' kaflann svo að áhorfendur gætu sungið meira.
http://www.youtube.com/watch?v=P6GuK9okmjw&feature=related
Radiohead hækkuðu allavega rosalega í áliti hjá mér þarna og eru nú þriðja uppáhalds hljómsveitin mín.
Hlustaði á Damien Rice tónleikana í útvarpinu á laugardaginn. Rice er frábær live tónlistarmaður þó að sum lögin hans hafi ekki alveg virkað í acoustic útgáfu. Rosalega er samt pirrandi þegar áhorfendur fara að klappa í miðju lagi.
Systkini mín voru á Tom Waits tónleikum í París. Öfunda þau rosalega, bæði vegna þess að mig langar svo rosalega til París (faðir minn harðneitar að fara) og Waits er minn uppáhalds tónlistarmaður. En jæja...
Svo er víst búið að hætta við Nightwish tónleikana sem áttu að vera hér. Bróðir minn er frekar leiður.
föstudagur, 1. ágúst 2008
sunnudagur, 15. júní 2008
"Fitter... happier... more productive..."
Já, ég er að fara á Radiohead tónleika í Glasgow eftir rúmlega viku. Hlakka fáránlega mikið til. James Blunt hvað?
Leikskóli gengur glimrandi, er búinn að læra fína aðferð til að tala við börnin. Maður étur bara upp hálfa setninguna og býr til spurningu úr henni. Þetta hefur að vísu sína galla, til dæmis kann ég núna ævisögur nokkurra barna þarna...

mánudagur, 9. júní 2008
"Á leikskóla er gaman..."
"Úff hvað ég er þreyttur. Búinn að vera að raka, reita arfa, vökva, slá og planta blómum í allan dag. Æj, hvað mér er illt í höndunum."
"Úff hvað ég er þreyttur. Búinn að ýta rólu í 2 klukkutíma, horfa á lítil börn leika sér og hlusta á ævisögu nokkurra krakka."
Bergþóra, þú hafðir rétt fyrir þér. Ég skulda þér eitthvað.
"Úff hvað ég er þreyttur. Búinn að ýta rólu í 2 klukkutíma, horfa á lítil börn leika sér og hlusta á ævisögu nokkurra krakka."
Bergþóra, þú hafðir rétt fyrir þér. Ég skulda þér eitthvað.
föstudagur, 30. maí 2008
Börn
Ég er stoltur af mér. Ég samdi loksins nýtt lag, hef ekki gert það rosalega lengi. Þetta er allt að koma hjá mér.
Skólinn er samasem búinn, skólaslit eftir. Frábært. Er búinn að fá sumarvinnu, á sama leikskóla og mamma mín vinnur á. Jafn frábært? Nei. Ekki út af þessu með mömmu mína heldur þessu með leikskólann.
Ég hef komist að því eftir 4 lítil frændsystkini að ég get ekki talað við börn. Ég get ekki fengið mig til að hækka röddina og tala kjánalega á einhverju bullmáli, og ég get heldur ekki talað venjulega við þau. Hef margoft reynt einhverjar millileiðir en þær heppnast sjaldan.
Já, ég er hræddur.

sunnudagur, 25. maí 2008
Handklæði
http://en.wikipedia.org/wiki/Towel_Day
Mundi loksins eftir þessu í ár :D Er búinn að ætla að gera þetta í 2 ár.
Leitt hvernig fór með evrósýn, en svona er þetta. Það er alltaf næsta ár.
Mundi loksins eftir þessu í ár :D Er búinn að ætla að gera þetta í 2 ár.
Leitt hvernig fór með evrósýn, en svona er þetta. Það er alltaf næsta ár.
föstudagur, 23. maí 2008
Evrósýn
...versnar og versnar með hverju ári.
Fáklæddar stelpur að syngja léleg popplög og sykursætir strákar að syngja hræðilegar kraftballöður. Og ef að einhver kemur með öðruvísi, skemmtilegt atriði er púað á þá.
Ísland komst áfram, jei. Allar norðurlandaþjóðirnar komust áfram. Eitthvað nýtt.
Bosnia-Herzegovina fær mitt atkæði. Gott lag þrátt fyrir undarlegt, frekar óhugnalegt atriði.

miðvikudagur, 21. maí 2008
Nostalgía
Hef verið haldinn nostalgíu undanfarnar vikur. Bara, hitt og þetta sem ég sakna.
9. áratugurinn, tónlistin þá, Neskvikk í baukum, lögregluhundurinn Rex (já...), Pókemon, gamalt barnaefni, gamlar auglýsingar... og það allra nýjasta: Blogg.
Svo að hér er nýja bloggsíðan mín. Blog.Central var orðið allt of flókið fyrir mig, þetta er einfalt og gott.
Ó, annað sem ég sakna: Mannsins á vídjó spólunum sem sagði alltaf hvort myndin væri bönnuð eða ekki!
"Að lesa blogg er góð skemmtun. Þetta blogg er leyft öllum aldurshópum. Góða skemmtun."

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)