Ég er stoltur af mér. Ég samdi loksins nýtt lag, hef ekki gert það rosalega lengi. Þetta er allt að koma hjá mér.
Skólinn er samasem búinn, skólaslit eftir. Frábært. Er búinn að fá sumarvinnu, á sama leikskóla og mamma mín vinnur á. Jafn frábært? Nei. Ekki út af þessu með mömmu mína heldur þessu með leikskólann.
Ég hef komist að því eftir 4 lítil frændsystkini að ég get ekki talað við börn. Ég get ekki fengið mig til að hækka röddina og tala kjánalega á einhverju bullmáli, og ég get heldur ekki talað venjulega við þau. Hef margoft reynt einhverjar millileiðir en þær heppnast sjaldan.
Já, ég er hræddur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Til hamingju með það (lagið og vinnuna).
Reikna ekki með að þú þurfir að hafa miklar áhyggjur af þessu með krakkana, þetta kemur á öðrum degi...
Hvenær fær maður að heyra lagið?
og hvernig gengur svo á leikskólanum?
Skrifa ummæli